Georg! Hentirðu útigrillinu? Viltu gjöra svo vel og ná í það - því gæti verið stolið!"

Stella (í orlofi) við eiginmann sinn Georg
 
You are here: Heim arrow Stefu-blog
Stefu-blog
Stella í orlofi PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stefa   
mánudagur, 04 ágúst 2008
„Hver á þennan bústað? Já eða nei !?"
Stella í Orlofi við Georg eiginmann sinn

Kveðjur (29) | Vitnaðu í þessa grein | Prenta | Rafpóstur | Lesa meira...

 
Sunnudagur til sælu PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stefa   
sunnudagur, 24 febrúar 2008

Ahhh hvað það yndislegt að vera til!

Á föstudagskvöldið var ég boðin í RAUTT partý þar sem boðsgestir mættu í einhverju rauðu eða með eitthvað rautt. Rauðar veigar voru í boði ásamt rauðu meðlæti, rauð ljós og já...ég held að stemmningin sé komin í ljós. Þetta var frábært kvöld í hópi góðra vinkvenna og skrafað langt fram á nótt.

Laugardagurinn hvíldardagur svona mestmegnis þar til um kl.16:30. Þá kíktum við í Smáralindina. Rúnar fann sér fallega peysu og eftir smá búðaráp fundum við kjól sem hann gaf mér (og ég túlka sem konudagsgjöf ;o). Við enduðum ferðina á að borða á TGI Friday's sem Markúsi fannst nokk spennandi. Hann fékk svo að fara til ömmu Ástu og afa Þóris í eftirmat og næturgistingu því við Rúnar vorum boðin í partý.

Ég fór í nýja kjólinn minn og Rúnar í nýju peysuna og svo mættum við galvösk í frændsystkinapartý sem var planlagt í brúðkaupinu okkar. Þar var júróvisjón í miðjum klíðum og allir í svaka stuði. Partýið var mjög vel heppnað og við skemmtum okkur afskaplega vel.

Í dag var svo aftur rólegheitadagur fram eftir öllu. Við fórum til tengdó til að ná í Markús en það var svo óskaplega notalegt þar að við fórum ekki heim fyrr en að kvöldmat loknum.

Það er þó skemmtilegt frá að segja að frændsystkinapartýið sem við fórum í í gærkvöldi var annað slíkt partý í febrúar sem við fórum í (og hvað eru nú mörg Í í þessari setningu?? ;o) Í gær hittust barnabörn ömmu Stefu (sumsé systkinabörn móður minnar) og fyrir tveimur vikum hittust barnabörn Önnu ömmu Rúnars (sumsé systkinabörn Þóris). Frændsystkinahóparnir ákváðu sumsé hvor í sínu lagi í brúðkaupinu okkar Rúnars að partý skyldi halda fljótlega eftir áramót því allir skemmtu sér svo vel. Þetta finnst okkur alveg frábær tilviljun. Bæði partýin heppnuðust svakalega vel og við þökkum kærlega fyrir okkur.

Ég hef fengið all nokkrar hugmyndir að góðum bloggfærslum undanfarna daga en þar sem ég er ekki ein þeirra sem skrifa niður hugmyndir jafn óðum og ég fæ þær þá sitja mínir dyggu lesendur uppi með hversdagsblaðrið....þar til eitthvað fjörugra poppar upp :o)

Bestu óskir um góða vinnuviku,
Ykkar Stefa

Kveðjur (24) | Vitnaðu í þessa grein | Prenta | Rafpóstur | Lesa meira...

Síðast uppfært ( sunnudagur, 24 febrúar 2008 )
 
Frú Stefa búin að halda jól og komið nýtt ár PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stefa   
miðvikudagur, 02 janúar 2008


Góðir lesendur nær og fjær,

ég hef með eindæmum verið blogg-löt og ætla ekki að biðjast afsökunar. Svona bara gengur þetta - stundum er maður í stuðinu og stundum er maður það ekki.

En hér á bæ hafa margir góðir hlutir gerst. Við Rúnar erum orðin hjón og mikið rosalega hefur allt breyst hjá okkur. Hahahah...nei bara grín. En þetta er nú óneitanlega skemmtilegt að vera búin að ganga í það heilaga. Við settum upp brúðkaupssíðu og þar má lesa eitt og annað varðandi undirbúninginn og svo stóra daginn auðvitað.

Jólin voru yndisleg hérna í Njörvasundinu. Við Rúnar og Markús buðum Bjartmari vini okkar að vera hjá okkur á aðfangadagskvöld því að sjálfsögðu megum við ekki vita af slíkri einmana sál aleinni í myrkinu án matar og gjafa....hahahha...Bjartmar lét sér ekki segjast fyrr en á þriðja símtali að koma og vera hjá okkur. En hann trúði mér fyrir því að mömmu sinni hefði hann sagt að þegar konur töluðu í ákveðnum tóni þá gegndi maður - og slíkt hefði gerst þegar ég hringdi í hann og sagðist ekki taka annað í mál en hann yrði með okkur á jólunum.

Við borðuðum saman hamborgarhrygg og tilheyrandi meðlæti og svo voru á boðstólum þrenns konar eftirréttir svo allir gátu fengið eitthvað við sitt hæfi. Við tókum svo saman upp pakkana en reyndar vildi Markús ómögulega opna nema þrjá pakka - hann var svo ánægður með innihaldið að þegar honum var boðið að opna fleiri sagði hann einfaldlega: "Nei takk" og hélt svo áfram að leika sér.

Sveinbjörn kom svo til okkar á jóladag og þá voru jól í annað sinn. Strákarnir tóku upp restina af pökkunum og svo fórum við í tvenn jólaboð um kvöldið. Á annan í jólum héldum við Rúnar sameiginlega jólaboð stórfjölskyldu fráskilinna og núverandi maka. Þetta er gert í annað sinn en verður vonandi árlegur atburður. Í ár hittumst við hér heima, ég og Rúnar, Milla (hans fyrrverandi) og Raggi (hennar núverandi) og Hófí (hans fyrrverandi) með alla krakkana, Markús, Sveinbjörn, Sindra og Rakel. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og mér finnst bara mjög merkilegt að allt þetta fullorðna fólk geti átt saman góðan eftirmiðdag og rætt saman eins og eðlilegt fólk. Krakkarnir skemmta sér mög vel saman og þar er góður "systkinahópur" á ferð.

Jólaboðin í ár voru alls fjögur. Það var yndislegt að fara í þau öll þó mér þyki heldur mikið að vera boðin í jólaboð nánast alla daga milli jóla og nýárs. Við fórum svo um helgina á spilakvöld hjá Jónasi bróa og Guðnýju þar sem við tókum nokkur spil. Ticket to ride, Draugastiginn og Carcassonne urðu fyrir valinu en ég hafði bara spilað Ticket to ride áður. Þetta voru allt saman mjög skemmtileg spil og einstaklega skemmtilegt kvöld þar sem ég rúllaði þeim upp í flestum spilum (að draugastiganum undanskildum ....frábært spil sem er ekki eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera).

Áramótin okkar voru haldin í Stakkhömrunum hjá tengdó. Við Rúnar vorum komin í svo mikinn rólegheitagír að við nenntum ekki einu sinni að klæða okkur upp á svo við fórum bara í venjulegu-fötunum okkar í áramótaboðið. Þetta var virkilega notalegt kvöld með tengdaforeldrum mínum og fjölskyldunni hans Sveins, bróður Rúnars. Við borðuðum öll saman, horfðum á skaupið og fylgdumst með flugeldum. Einhverju af skotdótinu hafði verið komið á loft þegar flugeldur frá nágranna skaust inn á pallinn og sprakk þar sem mennirnir okkar, tengdapabbi og eldri drengirnir stóðu rétt eftir miðnætti. Rúnar fékk þetta í fótinn en á einhvern ótrúlegan hátt sluppu allir við meiðsli. Röð tilviljana olli því að það eina sem varð úr þessu var sjokk fyrir okkur öll. Ég og Ragna svilkona mín stóðum inni við eldhúsgluggann með yngstu krílin og horfðum á þegar þetta bara sprakk þarna fyrir framan okkur. Sveinbjörn fékk gríðarlegt sjokk og titraði og skalf í um 1,5 klst á eftir litla skinnið – hann hélt að bæði hann og pabbi hans myndu bara hreinlega deyja þarna... en við þökkuðum bara fyrir að hendur, fætur, augu og eyru skulu hafa sloppið með skrekkinn.

Það varð því snöggur endir á áramótagleðinni því engan langaði að fara út og skjóta meiru upp eftir þetta atvik. Það eru því nokkrir flugeldar sem bíða þrettándans.

Annars skil ég ekki í fólki að virða ekki svona þessar týpísku flugelda-hefðir/siði/reglur/lög. Aldrei skjóta upp dagana fyrir gamlárs. Ég get séð í gegnum fingur mér með að börn á ákveðnum aldri fái að skjóta upp hvellettum/kínverjum/ýlum og öðru leiðindadóti sem er bara til að fylla upp í flugeldapakkana, í fylgd fullorðinna, fyrir miðnætti á gamlársdag. En ég þoli ekki þegar fólk getur ekki beðið með að skjóta upp fyrr en á miðnætti - mér finnst eins og þetta sé bara ekkert heilagt lengur! Svo finnst mér æ fleiri tala um að skjóta bara restinni upp á nýársdag/kvöld. Það er bara alveg út í hött! Restinni af flugeldunum á að skjóta upp á þrettándanum og ekki einu einasta priki þarna á milli gamlárskvölds og þrettánda. Einu undantekningarnar eru fyrirfram ákveðnar og auglýstar sýningar. Og hana nú - mér er heitt í hamsi hvað þetta varðar.

Annars er ég pollróleg - á frí þar til skólinn byrjar og ætla að njóta þess algjörlega! Ætla, eins og venjulega, að gera hlutina eftir mínu höfði og hlakka svo bara til að byrja í skólanum aftur.

Bestu nýárskveðjur,
Frú Stefa



Kveðjur (13) | Vitnaðu í þessa grein | Prenta | Rafpóstur | Lesa meira...

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 02 janúar 2008 )
 
Brúðkaupsundirbúningur og blogg PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stefa   
miðvikudagur, 31 október 2007

Hæhæ,

mig langaði rétt að sletta því hér inn að við erum búin að setja upp brúðkaupssíðu þar sem hægt er að fylgjast með undirbúningnum og fleira. Endilega kíkið við og munið að kvitta í gestabókina.

Slóðin er www.hljodfaeri.is/brudkaup

Bestu kveðjur,
Stefa

Kveðjur (17) | Vitnaðu í þessa grein | Prenta | Rafpóstur | Lesa meira...

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 31 október 2007 )
 
Brjóst og berar konur PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Stefa   
miðvikudagur, 24 október 2007

Já hvað skyldu nú margir villast hingað af www.google.com sem slógu inn leitarorðin "brjóst" eða "berar konur" ?? svar:_____

Ástæða fyrirsagnarinnar er þáttur sem ég er að horfa með öðru auganu á. Hann heitir "How to look good naked". Þetta eru alveg hreint frábærir þættir sem sýna konur eins eðlilegar og þær eru með sigin brjóst, appelsínurassa, feit læri, slappa maga og svo framvegis. Svo er þeim sýnt hvernig þær geta klætt af sér það sem þær eru óánægðar með, hvernig þær geta gert húðina fallega, hvaða málning hentar, hvaða hárgreiðsla passar og hvaða fylgihlutir geta dregið fram það besta. En hér eru engar lýtaaðgerðir eða niðurlægjandi aðstæður sem fara illa með sjálfstraustið heldur miðar þetta einmitt allt að því að auka sjálfstraustið í þeim flotta og frábæra líkama sem konan ber óháð því hversu kílóin eru mörg.

Þetta er sérstaklega skemmtilegt í samanburðinum við þáttinn sem ég horfði líka með öðru auganu á rétt á undan. Það var Americas Next Top Model sem ég hef nú alveg lúmskt gaman af að horfa á. En samt finnst mér þeir þættir eins úrkynjaðir og þeir geta verið því það er eins og reynt sé að niðurlægja og reyna til hins ýtrasta á líkamlegt og andlegt atgervi þátttakenda. Sýnt er frá rifrildum og leiðindaháttum stúlknanna þegar þær búa saman og reyna að rífa hverja aðra niður.... alveg merkilegt að maður skuli samt hafa smá gaman af því að horfa!

En ég sumsé held að ég sé bara að verða ánægðari og ánægðari með minn eigin líkama. Sérstaklega þegar ég horfi svona á þætti þar sem ég sé eðlilegar konur í eðlilegum aðstæðum. Svo er ég búin að léttast svolítið síðasta mánuðinn og allt stefnir í að ég passi flott í brúðarkjólinn eftir þrjár vikur! Spurning um að kaupa bara magabeltisnærbrækur og þá lyftist magaspikið upp að brjóstum og voilah! ég er komin með risabrjóst og hörkumitti.... hahhahaha...

Bestu kveðjur úr sófanum,
Stefa

Kveðjur (23) | Vitnaðu í þessa grein | Prenta | Rafpóstur | Lesa meira...

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 24 október 2007 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 15 af 28

[+]
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • laputa color
  • sakura color